Jææjaaa….
Kallinn er mættur hérna eftir þennan þriðja danstíma. Þið getið
trúað mér eða verið froðu heilar en kjellinn er að verða nokkuð
góður bara! Eða ballfær einsog námskeiðið gefur til kynna, eða
meira svona ballfær en dansa inni fatahengi þar sem enginn sér!
J
En jú tíminn
byrjaði ágætlega og ég hugsaði: djöfull skal ég monnta mig í
vinnuni á morgun! Kappinn var að sveifla skvísunum fram og aftur og
í hringi,og þær launuðu til baka með brosi, og ekki svona
brosi til að fela hláturinn. En auðvitað gat ég ekki farið
slysalaust í gegnum þetta og ég held án gríns að ég hafi farið
langleiðina með að tábrjóta einn öldunginn…. Það var þannig að ég
var í einum sem kallast skoskur dans og var í bakkgír. Ég tók þarna
eitt, tvö, þrjú og bombaði aðeins of fast hælnum niður, sem betur
fer fyrir mig lennti ég á mjúku en því miður fyrir gamla kvikindið
var það táin hans, við þetta gat ég ekki stillt mig og það kom
svona hlátur fruss út úr mér!
En einsog svo
margir vita er ég svoldið afprýðissamur og ekkert rosalega lengi að
verða reiður, en einnig er ég mjög fljótur niður. Er þetta
keppniskapi að kenna en ég er þannig af guði gerður að ég þarf
alltaf að vera að keppa, og skiptir mig það engu í hverju það er.
En stundum ætti ég sjálfs míns vegna ekki að vera að keppast og er
dansinn eithvað sem ég ætti að hafa vit á að láta vera! Þegar ég
var á gólfinu og var að dansa átti ég í þessum mestu erfiðleikum
með að ná þessu, ég horfði niður á tærnar á mér og fór helmingi
hægar en allir aðrir, skrefin hjá mér voru tvö til hægri, tvö til
vinstri. Dansfélagi minn, var einsog þið getið giskað gömul kona
frá steinöld og hreyfði sig í samræmi við það. En svo er ég þarna
einbeittur, lýt upp og sé Selmu í dansi með aðal dans gúrunum
þarna, gaur sem hefur farið á öll námskeið sem haldin eru þarna og
þykist vera svalastur á svæðinu! En jæja ég sé hann þarna sveifla
konunni hring eftir hring meðan mongólitinn kærasti hennar er í
einn, tveir-einn,tveir. Við þetta varð ég frekar pirraður (ég var
semsagt að tapa) og langaði helst til að rjúka í gaurinn. Þar sem
að ég var allsgáður á öldunganámskeiði og jafnframt að ástæðan
fyrir barsmíðunum yrði heldur kjánaleg ákvað ég að þola þetta bara
og einbeita mér að einn,tveir-einn,tveir. Að sjá hvað Selma hafði
líka gaman að dansa við einhvern góðan hjálpaði beint ekki til og
ég hugsaði: ef hann fer á rassinn á henni rýk ég í hann!
En hann gerði
ekkert solleiðis enda ágætis kall og héldum við þarnæst í klapp
dansinn sem við vorum í seinast. (Þarna góða mamma dæmið). Þegar ég
smellti mér á eina konuna sagði hún í sífellu “varlega,
varlega,varlega” og það í hvert skipti sem ég ætlaði að gefa henni
five. Hefur hún eflaust verið hrædd um að brotna eða að ég mundi
óvart slá hana í framan. Hvort það er, skal ósagt látið en við
þetta gat ég ekki annað en hugsað um orð Styrmis sem bað mig um að
passa að brjóta ekki þær gömlu í five-unum.
Reyndar var mér
einu sinni neitað….Mér er ekkert neitað! Og allra síst þar sem
dömurnar eru allar yfir fertugt! Hvað er það? Ég ætlaði að fara
hrista hana til og hún sagði: Nei, ég ætla frekar að dansa við
þennan! HA????? Og nei þetta var enginn Hönk! Ég var geðveikt
heitur þarna í jakkanum og Next gallabuxum,nýkomin úr klippingu og
með 1800 króna gel í hárinu! DJÖFULLINN! Og hún velur einhvern
sveittan miðaldra mann sem sér ekki typpið á sér…..Já svona er
þetta…..kannski hann hafi bara kunnað að dansa? En þetta reddaðist
nú og ég fékk heitari skvísu í staðinn!
En þetta var samt
bara ágætis tími og er ég í raun bara að fínpússa sporin núna, One
to go og svo skal ég sýna ykkur hvernig við gerum þetta á næsta
djammi!
En later
Stebbi Travolta!
